Hjartarsalt er notað sem lyftiefni í bakstur, aðallega smákökubakstur til að fá sléttar og stökkar kökur. Ammoníaksgufurnar sem myndast þegar deigið hitnar - en þær gefa lyftingu - þurfa að gufa alveg upp en það næst ekki í stærri og blautari kökum. [1]
Hjartarsalt er í mörgum norrænum uppskriftum t.d. af íslenskum loftkökum.
Hjartarsalt er notað sem lyktarsalt til að vekja fólk af yfirliði. Nafnið kemur frá því að efnið var unnið úr dýrahárum og dýrahornum, ekki síst