Rútuslys á Þingvallavegi
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru í morgun kallaðar út vegna rútu sem fór á hliðina á Þingvallavegi um klukkan 10.30 í morgun. Verið að flytja síðustu farþegana af slysstað. Flestir þeirra farþeganna Mosfellsbæ, þar sem þeir njóta aðhlynningar. Verið er að flytja aðra á sjúkrahús til skoðunar. Meiðsl þeirra eru ekki ljós á þessari stundu.
Lögreglan ítrekar að þeir sem kunna að hafa tekið upp farþega á svæðinu láti vita tafarlaust af því í síma 112.
Neyðarástandi hefur nú verið aflétt á Landspítalanum samkvæmt upplýsingum mbl.is. Blóðbankinn hefur því ekki þurft að gefa frá sér frekara ákall um blóðgjafir í kjölfar rútuslyssins sem varð fyrr í dag.
42 voru um borð í rútunni sem valt út af Þingvallavegi upp úr klukkan tíu í morgun. Fimmtán voru fluttir á Landspítalann til aðhlynningar en 27 voru fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ.