Fasteignasalan Garður sími 562-1200 kynnir:
Vorum að fá í einkasölu fallega 141fm sérhæð ásamt 28fm bílskúr. Samkvæmt fasteignamati ríkisins er eignin skráð 168,9 fm.
Skipting eignar: Anddyri, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofa, borðstofa, eldhús og tvennar svalir. Í kjallara: sérgeymsla og þvottahús.
Nánari lýsing:
Anddyri. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað herbergið með útgengt á austursvalir. Flísalögð gestasnyrting. Stórt hol sem tengir aðalrými eignarinnar saman. Stórt og gott eldhús með fallegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur og útgengt á stórar suðursvalir. Stór og björt stofa og borðstofa. Hjónaherbergi með fataskáp og suðursvölum. Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, upphengdu salerni og sturtuklefa.